Páskafjör 2012

Opnunardagur 75-

Páskafjör 2012

Páskafjör í Fjarðabyggð

Tíróla hátíð í Austfirsku Ölpunum dagana 5 til 9 apríl 2012.

 

Þá er enn og aftur að koma páskar og því um að gera að eyða góðum dögum í faðmi Austfirsku Alpanna ásamt fjölskyldu og vinum.

 

Margt skemmtilegt verður á dagskrá Tíróla hátíðar í ár og ætti hver og einn að finna eitthvað við sitt hæfi. Snjór er í Oddsskarði og von á góðu færi eins og svo oft er um páskana og að sjálfsögðu er von á sól og blíðu.

 

Fimmtudagurinn 5. apríl. Skírdagur.

Skíðasvæðið Oddsskarði – Austfirsku Alparnir

Opið frá 10:00 – 17:00 og um kvöldið frá 20:00 – 23:00.

 

Dagur brettafólksins. Lögð verður Bordercross-braut (snowboard racing) ásamt stökkum og hólum sem ætti að kæta marga brettaunnendur.

20:00 - 23:00 Um kvöldið verður hið árlega super jump snjóbrettamót, Mótið verður haldið við 1lyftuna ásamt dynjandi tónlist og fjöri.  Dæmt verður út frá getu, byltum, stíl og öllu sem dómurum dettur í hug að gefa fyrir.

 

 

Föstudagurinn 6. apríl. Föstudagurinn langi.

Skíðasvæðið Oddsskarði – Austfirsku Alparnir

Opið í frá 10:00 – 17:00.

 

Þrautabraut fyrir yngstu kynslóðina. Lögð verður skemmtileg braut við litlu lyftuna með ýmsum þrautum og stökkum.

 

 

Laugardagurinn 7. apríl.

Skíðasvæðið Oddsskarði – Austfirsku Alparnir

Opið frá 10:00 – 17:00 og um kvöldið frá 20:00 -23:00.  Tíróla stemning verður ríkjandi í fjallinu allan daginn.

13:00 Risastórsvig fyrir 16 ára og eldri í minningu Gunnars Ólafssonar. Keppnismenn fyrri ára og aðrir eru hvattir til að skrá sig. Skráning hefst kl.12 í skíðaskála. Við hvetjum aðra gesti til að mæta með bjöllur, flautur og jóðla í takt meðan keppendur bruna hjá.

20:00 til 23:00 Um kvöldið verður spiluð ekta Tíróla tónlist um allar brekkur í anda Ómars Skarphéðinssonar fram eftir öllu kvöldi.

 

23:00 Endum kvöldið með sprengingum að hætti Skúla Hjalta og drengjanna hans í Gerpi.

 

 

Sunnudagurinn 8. apríl. Páskadagur.

Skíðasvæðið Oddsskarði – Austfirsku Alparnir

Opið frá kl. 10:00 – 17:00.

 

Sparifatadagur.  Allir að mæta í sínu fínasta pússi í tilefni dagsins.

 

13:00 Páskaeggjamótið fyrir 8 ára og yngri. Lagðar verða 2 brautir hlið við hlið og eru léttar þrautir í þeim. Allir fá síðan páskaegg í lok keppni.

.

 

Mánudaginn 9. Apríl.

Skíðasvæðið Oddsskarði – Austfirsku Alparnir

Opið frá  10:00 – 17:00.

 

Kjötsúpukveðjuhátíð.  Súpa seld í skálanum í ódýrari kantinum og mun allur ágóði renna til Björgunarsveitarinnar Gerpir á Norðfirði , en þeir sjá um alla gæslu á svæðinu um helgina.

 

Allir hvattir til að mæta með góða skapið og skemmta sér vel í góðra vina hópi í fallegu umhverfi og náttúrulega í frábæru veðri sem að sjálfsögðu verður til staðar.

 

Hægt er að nálgast aðrar upplýsingar á vef Skíðamiðstöðvarinnar www.oddsskard.is. og í síma 878-1474 .

 

 

Skíðasvæðið í Oddsskarði er talið með þeim skemmtilegustu hérlendis

því er tilvalið að eyða góðri helgi saman í góðra vina hóp.

Þökkum öllum sem  styrkja okkur til að Tíróla hátíðin verði sem veglegust og skemmtilegust. okkar bestu þakkir.

G. Skúlason,  Hárgreiðslustofa Maríu,  Kristall,  Verslunin Vík,  Rafgeisli Tómas R. Zoega,  Flytjandi,  Bílaverkstæði Önundar,  Tónspil,  Laufskálinn,  Fjarðalagnir,  Fjarðanet,  Gallerí Hár,  Hárgreiðslustofa Sigríðar,  Haki,

Efla Verkfræðistofa,  Sparisjóður Norðfjarðar,  Veiðiflugan / Fjarðasport,

www.oddsskard.is www.fjardabyggd.is

Skíðamiðsöð Austurlands Oddsskarði | Sími 476-1465 | Símsvari 878-1474 | oddsskard@oddsskard.is