Dagskrá 2009

Opnunardagur 38 -

Dagskráin 2009

Tíróla hátíð í Austfirsku Ölpunum dagana 9-13 apríl

Margt skemmtilegt verður á dagskrá Tíróla hátíðar í ár og ætti hver og einn að finna eitthvað við sitt hæfi. Mikill snjór er í Oddsskarði og von á góðu færi eins og svo oft er um páskana og að sjálfsögðu er von á sól og blíðu.

Fimmtudagurinn 9. apríl. Skírdagur.

Opið frá 10 - 17 og um kvöldið frá 20 - 23.

Dagur brettafólksins. Lögð verður Bordercross-braut (snowboard racing) ásamt stökkum og hólum sem ætti að kæta marga brettaunnendur.

20:00 til 23:00 Um kvöldið verður hið árlega super jump snjóbrettamót, Mótið verður haldið við 1lyftuna ásamt dynjandi tónlist og fjöri.  Dæmt verður út frá getu, byltum, stíl og öllu sem dómurum dettur í hug að gefa fyrir.

Hljómsveitin Winson leikur nokkur lög í lok kvöldsins.

 

Föstudagurinn 10. apríl. Föstudagurinn langi.

Opið frá 10 - 17.

10:00-12:00 Þrautabraut fyrir yngstu kynslóðina. Lögð verður skemmtileg braut við litlu lyftuna með ýmsum þrautum og stökkum.

 

Laugardagurinn 11. apríl.

Opið frá 10 - 17 og um kvöldið frá 20 -23.

Tíróla stemning verður ríkjandi í fjallinu allan daginn.

13:00 Risastórsvig fyrir 16 ara og eldri í minningu Gunnars Ólafssonar. Keppnismenn fyrri ára og aðrir eru hvattir til að skrá sig. Skráning hefst kl.12 í skíðaskála.

Við hvetjum aðra gesti til að mæta með bjöllur, flautur og jóðla í takt meðan keppendur bruna hjá.

20:00 til 23:00 Um kvöldið spilar hið heimsfræga Wald 3 ekta Tíróla tónlist um allar brekkur í anda Ómars Skarphéðinssonar fram eftir öllu kvöldi.

Flugeldasýning endar skemmtunina í fjallinu og verður síðan jóðlandi gleði hjá Frú Lúlú fram eftir nóttu með Wald 3.

 

Sunnudagurinn 12. apríl. Páskadagur.

Opið frá 10 -17.

Sparifatadagur.  Allir að mæta í sínu fínasta pússi í tilefni dagsins.

13:00 Páskaeggjamótið fyrir 8 ára og yngri. Lagðar verða 2 brautir hlið við hlið og eru léttar þrautir í þeim. Gefin verða verðlaun fyrir bestu tilþrif, byltu, brosið og hvað eina sem vekur gleði og fjör. Allir fá síðan páskaegg í lok keppni.

Mun hún Rósmunda Halldóra mæta til að dæma og veita verðlaun.

14.30  Bordercross-braut.  Leikur fyrir 9 ára og eldri. Tveir eða fleiri renna saman og sá sem kemur fyrstur niður fer aðra umferð. Nota má ýmsa klæki á niðurleið til komast fyrstur niður.

 

Mánudagurinn 13. apríl.

Opið frá  10 - 17.

Kjötsúpukveðjuhátið.  Súpa seld í skálanum í ódýrari kantinum og mun allur ágóði renna til Björgunarsveitarinnar, en þeir sjá um alla gæslu á svæðinu um helgina.

Allir hvattir til að mæta með góða skapið og skemmta sér vel í góðra vina hópi í fallegu umhverfi og náttúrulega í frábæru veðri sem að sjálfsögðu verður til staðar.

 

Skíðasvæðið í Oddsskarði er talið með þeim skemmtilegustu hérlendis

því er tilvalið að eyða góðri helgi saman í góðra vina hóp.

Skíðamiðsöð Austurlands Oddsskarði | Sími 476-1465 | Símsvari 878-1474 | oddsskard@oddsskard.is