Það verða smávægilegar breytingar til hækkunar á verðskrá. Boðið verður upp á afslætti á vetrarkortum til 20.des. 2010 og eftir það verða í boði fjölskylduafslættir. Sjá verðskrá. Opnunartími skíðasvæðisins breytist frá síðasta vetri og munum við mæta þeirri hagræðingu sem þarf með færri opnunum í slæmum veðrum á virkum dögum en halda helgum og frídögum óbreyttum.
Núna fram til 10.des verðum við með opið um helgar frá kl.11:00 til 15:00 þegar veður leyfir og einhverja virka dag, verður þá opið frá kl.17:00 til 19:00.
Þrátt fyrir hlákuna sem er núna er enn nægur snjór í 1-lyftu og byrjendalyftu, þarf smá tilfærslu á snjó til að geta opnað gilið og sunnan við byrjendalyftu, verður farið í það núna um helgina og ættum við að ná að gera allt klárt um miðja næstu viku. Það er von okkar að geta boðið upp á góðar aðstæður til skíðaiðkunar í vetur og verður kappkostað að halda úti góðum skíðleiðum og einhverju pöllum þannig að allir gestir okkar geti notið Austfirsku Alpana veturinn 2011.
Skíðasvæðið í Oddsskarði er lokað
| Byrjendalyfta | lokað |
| 1 Lyfta | lokað |
| Topplyfta | lokað |
