Tírolahátíð Austfirsku Alpana.

Tírolahátíð Austfirsku Alpana. Þá er komið að páskum enn eitt árið og munu Austfirsku alparnir halda sína 21 Tírólahátíð. Það hefur verið dálítið skrítið

Tírolahátíð Austfirsku Alpana.

Austfirsku alparnir- Leikvangur lífsins
Austfirsku alparnir- Leikvangur lífsins

Allt hefur þetta verið töluverð barátta við hlýindi og erfiðar aðstæður þar sem snjórinn er mjög blautur, en þetta virðist allt ætla að hafast og verðum við klár með svæðið á laugardags morgunn. Veðurspá fyrir næstu daga er sól og blíða. Skíðafærið verður trúlega vorfæri en þar sem brekkurnar eru mjög harðar undir mun haldast gott færi, brekkurnar verða ekki alltof blautar. Það verður ýmislegt skemmtileg um að vera hjá okkur um páskana og er pallabrautin sérstaklega áhugaverð og get ég fullyrt að svona braut er og hefur aðeins verið gerð í Oddsskarði, í henni eru 6 pallar af öllum gerðum og stærðum.  Það verður brettakennsla á brettadaginn þannig og einnig fyrir páskana og vonumst við til að það muni nýtast brettafólki til framfara.  Rúsínan verður á Tírola kvöldið sem endar með flugeldasýningu kl.23:00 Vonumst við til að sem flesti láti sjá sig því engin er Tírolahátíðin án góðra gesta, að lokum viljum við þakka öllum þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem leggja hönd á plóg til að geta haldið Páskafjör í Fjarðabyggð og Tírolahátíð Austfirsku alpana í 21 ár í röð.

Bestu þakkir .

Forstöðumaður  Austfirsku alpana- þeirra einu og sönnu ;)


Skíðamiðsöð Austurlands Oddsskarði | Sími 476-1465 | Símsvari 878-1474 | oddsskard@oddsskard.is