Takk fyrir góða páska

Takk fyrir góða páska   Þá eru páskarnir búnir og langar okkur hér í Austfirsku Ölpunum að þakka öllum okkar gestum fyrir að hafa komið í heimsókn þó

Takk fyrir góða páska

 

Aðsóknin um páskana var góð eða um 4.100 gestir  sem er mjög gott miðað við veður. Í vetur hafa því um 16-18.000 gestir lagt leið sína í fjallið á um 75 opnunardögum, sem er um 240 gestir að meðaltali á hvern opnunardag. Þetta er töluverð aukning frá síðasta vetri og vonandi heldur gestum áfram að fjölga á milli ára um ókomna framtíð. Frá árinu 2005 hefur gestum fjölgað úr 486 í um 18.000 árið 2009.   

Það sem er framundan er þetta helst: 15.apríl verður seinnihluti austurlands móts frá kl. 17:00 . 16.apríl  verða hér Grunnskóli Reyðafjarðar og Nesskóli í heimsókn. 17.apríl verður Grunnskóli Eskifjarðar og fjölskyldudagur Alcoa. 18.apríl er seinnihluti fjölskyldudags Alcoa. Eftir það er bara að mæta í fjallið og skemmta sér á skíðum því þetta eru síðustu dagarnir sem er opið.

Síðasti opnunardagur Austfirsku alpana er sunnudagurinn 26.apríl og verður þá farið í að taka af lyftum og ganga frá fjallinu eftir veturinn. Það verður rutt snjó úr skíðaleiðum í maí og lyftur yfirfarðar, á meðann er skíðasvæðið vinnusvæði og bið ég fólk um að vera ekki á ferð í brekkum á meðan.


Skíðamiðsöð Austurlands Oddsskarði | Sími 476-1465 | Símsvari 878-1474 | oddsskard@oddsskard.is