Snjór um víða veröld.

Snjór um víða veröld. Alþjóða skíðasambandið FIS stendur fyrir sérstökum degi „World Snow Day“ þar sem aðildarþjóðirnar eru hvattar til að brydda upp á

Snjór um víða veröld.

Komum börnunum í snjóinn.
Komum börnunum í snjóinn.

SNJÓR UM VÍÐA VERÖLD -

komum börnunum í snjóinn - sunnudagurinn 22. janúar 2012

Skíðasambands Íslands SKÍ hefur ákveðið að svara kalli FIS með því að efna til sameiginlegs átaks allra aðildarfélaga sambandsins og skíðasvæðanna. Þessir aðilar hafa allir sameiginlega hagsmuni af því að fjölga bönum og unglingum sem heimsækja fjöllin.

Tilgangurinn er að hvetja foreldra til að koma með börnin í fjöllin og njóta þar hollrar útivistar í hreinleika fjallanna.

Verkefnið er hugsað sem samstarfsverkefni SKÍ, skíðafélaganna, skíðasvæðanna og styrktaraðila sem taki höndum saman um að bjóða öllum börnum 12 ára og yngri ókeypis á skíði þennan dag.

Af þessu tilefni hefur verið ákveðið að Austfirsku Alparnir bjóði öllum skíðagestum frítt í lyfturnar sunnudaginn 22.janúar 2012 í samstarfi við Skíðafélag Fjarðabyggðar. Hvetjum við alla stóra og smá til að nýta sér tækifærið og mæta í Austfirsku Alpana og njóta útiverunnar í fallegu og hreinu umhverfi.


Skíðamiðsöð Austurlands Oddsskarði | Sími 476-1465 | Símsvari 878-1474 | oddsskard@oddsskard.is