24.febrúar 2009 02:feb - Dagfinnur S. Ómarsson - Lestrar 145
Þá er það nútíðin aftur, en aðsókn á skíðasvæðið hefur verið góð og með þessu áframhaldi ætti að verða hægt að auka eitthvað við þjónustuna þegar gott veður verður í mars og apríl með lengri opnun. Skíðamót verða núna í mars og verður gaman að fá alla þessa efnilegu og hressu skíðakrakka í heimsókn og um að gera fyrir þá sem ekki eru að keppa að koma og hvetja krakkana áfram, ná upp smá Alpastemmingu við mótin. Að lokum langar mig að biðja ykkur að senda mér í gegnum fyrirspurnarkerfið á heimasíðunni okkar ykkar hugmyndir af því sem betur má gera hér á skíðasvæðinu, við eru jú, að vinna hér fyrir ykkur og það eru ykkar þarfir sem þjónustan á að snúast um.
