Opnunar fréttir.

Opnunar fréttir. Nú í haust hefur verið unnið við bætta aðstöðu hér á skíðasæðinu og hefur verið sett upp nýtt  verkstæði og geymsla fyrir vélsleða og

Opnunar fréttir.

Það er kominn góður snjór í byrjendalyftu og einnig í 1-lyftuna, gilið fer að verða klárt en það vantar smá meiri snjó til að æfingabakkarnir komi inn. Við ætluðum að opna núna um helgina 5.-6.des. en vegna slæmrar veðurspár verður sennilega lítið úr því, spáð er austan 10m/s og rigningu. Við stefnum á að hafa opið um helgar og yfir hátíðirnar í desember en upplýsingar um framhaldið verður kynnt síðar í mánuðinum. Verðskráin verður sett inn á síðuna í dag en þar sem ekki var hækkuð gjaldskrá veturinn 2009 og vegna niðurskurðar þurfum við að hækka verð töluvert veturinn 2010. Breyting verður samt á að við munum bjóða afslætti á vetrarkortum fyrir fjölskyldur eða hópa og verða þeir misháir eftir fjölda korta sem keypt eru ( sjá verskrá ).

Verið er að smíða 3stk. Rail sem eru um 9metra löng, munu þau koma inn eitt af öðru frá janúar til mars.

Nánari upplýsingar um starfið í vetur kemur inn á síðuna þegar nær dregur nýju ári.


Skíðamiðsöð Austurlands Oddsskarði | Sími 476-1465 | Símsvari 878-1474 | oddsskard@oddsskard.is