Við stefnum á að opna skíðasvæðið 20.desember og verður háttalagið kynnt nánar síðar.opnunartími í vetur verður með smá kreppusniði og stefnum við á að hafa opið í byrjendalyftu og 1-lyftu frá kl.17:00 til 20:00 virka daga og frá kl.11:00 til 16:00 um helgar og frídaga síðan munum við opna frá kl.10:00 um helgar í byrjun mars og mun þá topplyftan koma inn líka. Verðskráin verður óbreytt frá 2008 og stefni ég á að hefja sölu á vetrarkortum nú í byrjun des.á afslætti eins og undanfarna vetur, mun ég kynna það betur þegar salan hefst.
Það er ekki gert ráð fyrir snjóframleiðslu á árinu 2008 og 2009 en reynt verður að halda uppi fullum gæðum á skíðaleiðum og stökkum um helgar en á virkum dögum munum við troða eitthvað minna og mjórra.
Það er enn ekki kominn nægur snjór í brekkurnar en vonast ég til að þetta verði allt komið 20.des svo hægt verði að opna..
