16.desember 2011 12:des - Dagfinnur S. Ómarsson - Lestrar 0

Það er kominn ágætis snjór hjá okkur og er búið að pakka honum niður í gilinu og við byrjendalyftuna einnig í æfingabökkunum en þarf að vinna töluvert í þeim til að þar verði skíðafært. Vonumst við að vera með gilið, æfingabakka, við byrjendalyftuna og „fun Park“ þar einnig þegar við opnum 26.des.
Við leitum af starfsfólki fyrir veturinn og erum við með tvær stöður lyftuvarða alla vikuna og síðan lyftuvörð um helgar og í skála um helgar. Lyftuverðir þurfa að vera orðnir 18 ára og hentar þeim sem vilja útivinnu og hentar báðum kynjum. Í skála er nóg að vera 16 ára eða eldri og hentar báðum kynjum einnig. Þeir sem hafa áhuga geta hafa samband í síma 899 7858 fyrir frekari upplýsingar
