19.May 2008 05:May - Dagfinnur S. Ómarsson - Views 107
Síðasta haust var sett upp snjókerfi við byrjendalyftu og virkaði það eins og gert var ráð fyrir, í hvert sinn sem við ætluðum að fara og framleiða snjó og fórum með byssurnar upp í brekku byrjaði að snjóa af himni ofan þannig að við keyrðum snjóvélarnar aðeins 3 daga svona til að prufa. Í desember kom nýr snjótroðari og hefur hann reynst vonum framar, tel ég að skíðafærið í fjallinu hafa verið framúrskarandi þó eflaust megi alltaf gera betur.
Í sumar verður ekki farið í neinar stórar aðgerðir á skíðasvæðinu og það eina sem verður gert er að setja upp snjógirðingu efst upp á topp í topplyftu til að tryggja meiri snjó þar. Að lokum vonum við að gestir okkar í vetur séu jafn ánægðir með veturinn og við, vonumst við til að geta hafið næstu skíðavertíð núna í nóvember og að aðsóknin verði jafn góð ef ekki betri veturinn 2009. Sumarið verður notað til að afla meiri þekkingar til að bæta aðstæður á skíðsvæðinu og vonumst við til að geta boðið upp á betri aðstæður en áður hefur verið gert veturinn 2009.
Takk kærlega fyrir að hafa komið í Austfirsku alpanna veturinn 2008.
