Páskafjör í Fjarðabyggð 2010
Tíróla hátíð í Austfirsku Ölpunum dagana 1 til 5 apríl 2010.
Þá er enn og aftur að koma páskar og því um að gera að eyða góðum dögum í faðmi Austfirsku Alpanna ásamt fjölskyldu og vinum.
Margt skemmtilegt verður á dagskrá Tíróla hátíðar í ár og ætti hver og einn að finna eitthvað við sitt hæfi. Mikill snjór er í Oddsskarði og von á góðu færi eins og svo oft er um páskana og að sjálfsögðu er von á sól og blíðu.
Fimmtudagurinn 1. apríl. Skírdagur.
Skíðasvæðið Oddskarði - Austfirsku Alparnir
Opið frá 10:00 - 17:00 og um kvöldið frá 20:00 - 23:00.
Dagur brettafólksins. Lögð verður Bordercross-braut (snowboard racing) ásamt stökkum og hólum sem ætti að kæta marga brettaunnendur.
20:00 - 23:00 Um kvöldið verður hið árlega super jump snjóbrettamót, Mótið verður haldið við 1lyftuna ásamt dynjandi tónlist og fjöri. Dæmt verður út frá getu, byltum, stíl og öllu sem dómurum dettur í hug að gefa fyrir.
Föstudagurinn 2. apríl. Föstudagurinn langi.
Skíðasvæðið Oddsskarði - Austfirsku Alparnir
Opið í frá 10:00 - 17:00.
10:00-12:00 Þrautabraut fyrir yngstu kynslóðina. Lögð verður skemmtileg braut við litlu lyftuna með ýmsum þrautum og stökkum.
Laugardagurinn 3. apríl.
Ferðaþjónustan Mjóeyri
Páskaeggjaleit fyrir alla fjölskylduna á Mjóeyri kl 9:30. Verð er eins og alltaf frjáls framlög.
Skíðasvæðið Oddsskarði - Austfirsku Alparnir
Opið frá 10:00 - 17:00 og um kvöldið frá 20:00 -23:00. Tíróla stemning verður ríkjandi í fjallinu allan daginn.
13:00 Risastórsvig fyrir 16 ára og eldri í minningu Gunnars Ólafssonar. Keppnismenn fyrri ára og aðrir eru hvattir til að skrá sig. Skráning hefst kl.12 í skíðaskála. Við hvetjum aðra gesti til að mæta með bjöllur, flautur og jóðla í takt meðan keppendur bruna hjá.
20:00 til 23:00 Um kvöldið spilar hið heimsfræga Wald 3 ekta Tíróla tónlist um allar brekkur í anda Ómars Skarphéðinssonar fram eftir öllu kvöldi.
23:00 Endum kvöldið með sprengingum að hætti Skúla
Sunnudagurinn 4. apríl. Páskadagur.
Skíðasvæðið Oddsskarði - Austfirsku Alparnir
Opið frá kl. 10:00 - 17:00.
Sparifatadagur. Allir að mæta í sínu fínasta pússi í tilefni dagsins.
13:00 Páskaeggjamótið fyrir 8 ára og yngri. Lagðar verða 2 brautir hlið við hlið og eru léttar þrautir í þeim. Gefin verða verðlaun fyrir bestu tilþrif, byltu, brosið og hvað eina sem vekur gleði og fjör. Allir fá síðan páskaegg í lok keppni.
14:30 Bordercross-braut. Leikur fyrir 9 ára og eldri. Tveir eða fleiri renna saman og sá sem kemur fyrstur niður fer aðra umferð. Nota má ýmsa klæki á niðurleið til komast fyrstur niður.
Mánudaginn 5. Apríl.
Skíðasvæðið Oddsskarði - Austfirsku Alparnir
Opið frá 10:00 - 17:00.
Kjötsúpukveðjuhátíð. Súpa seld í skálanum í ódýrari kantinum og mun allur ágóði renna til Björgunarsveitarinnar Gerpir á Norðfirði , en þeir sjá um alla gæslu á svæðinu um helgina.
Allir hvattir til að mæta með góða skapið og skemmta sér vel í góðra vina hópi í fallegu umhverfi og náttúrulega í frábæru veðri sem að sjálfsögðu verður til staðar.
Hægt er að nálgast aðrar upplýsingar á vef Skíðamiðstöðvarinnar www.oddsskard.is. og í síma 878-1474 .
Skíðasvæðið í Oddsskarði er talið með þeim skemmtilegustu hérlendis
því er tilvalið að eyða góðri helgi saman í góðra vina hóp.
Þökkum öllum sem styrkja okkur til að Tíróla hátíðin verði sem veglegust og skemmtilegust. okkar bestu þakkir.
Ferðaþjónustan Mjóeyri
G. Skúlason, Hárgreiðslustofa Maríu, Kristall, Verslunin Vík, Rafgeisli Tómas R. Zoega, Flytjandi, Bílaverkstæði Önundar, Tónspil, Landsbankinn, Laufskálinn, MCC, Bíley, Hótel Capitano, Fjarðalagnir, Fjarðanet, Gallerí Hár, Tærgesen, Hárgreiðslustofa Sigríðar, Haki,
Heildverslunin Stjarnan, Efla Verkfræðistofa, Sparisjóður Norðfjarðar, Íslandsbanki, Alcoa, Veiðiflugan / Fjarðasport, kaffishusid.is.








